Nýliðar Þórs byrja með sigri

Knattspyrnulið Þór og KA hófu leik í Bestu deild karla í knattspyrnu í gær. Þór vann Val á Hlíðarenda 2-1 en KA-menn töpuðu fyrir Stjörnunni 3-2 á Akureyri.

Í leik Þórs og Vals komust Valsmenn yfir eftir 27 mínútna leik en Christian Jakobsen jafnaði metinn fyrir Þórsara tíu mínútum síðar. Jafnt var í hálfleik, 1-1. Það var síðan ekki fyrr en á 89. mínútu sem næsta mark kom. Það gerði Ingimar Arnar Kristjánsson og tryggði Þórsurum sigur í endurkomunni í efstu deild.

Ítarlega umfjöllun um leikinn má finna á Fótbolti.net með því að smella hér.

KA-menn lentu snemma undir á móti Stjörnunni og staðan var orðinn 2-0 fyrir gestunum eftir 13. mínútna leik. Birgir Baldvinsson minnkaði muninn fyrir KA á 33. mínútu leiksins en Stjarnan leiddi í hálfleik. Bæði liðin gerðu eitt mark í síðari hálfleiknum og því lauk leiknum með 3-2 sigri Stjörnunnar. Jakob Héðinn Róbertsson gerði seinna mark KA í leiknum.

Ítarlega umfjöllun um leikinn má finna á Fótbolti.net með því að smella hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!