Hlynur Hallsson opnar sýningu í Leyni á Akureyri 

Hlynur Hallsson opnar sýninguna „Sumardagurinn fyrsti / Der erste Sommertag / The first day of summer“ í Leyni, Hafnarstræti 95 á Akureyri þann 23. apríl 2026 kl. 20 sem er einmitt á sumardaginn fyrsta. Hlynur sýnir ný og nýleg spreyverk á þessari sýningu en nú er einnig að fara í prentun bók um textaspreyverk Hlyns og hægt er að styðja útgáfu bókarinnar og kaupa bók á Karolinafund: https://www.karolinafund.com/project/view/6731

Þetta er 77 einkasýning Hlyns sem hefur verið starfandi myndlistarmaður í rúmlega 30 ár. Sýning hans „Enn og aftur“ í sal 4 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði stendur nú yfir og alveg fram á haust. Síðustu einkasýningar Hlyns eru „Elska þig“ í Mjólkurbúðinni 2025, „Herbergi með útsýni“ í Gallery Port í Reykjavík 2024, „Rendur og stjörnur“ í Gallerí Listamenn í Reykjavík 2023 og „abandoned stories“ í Kasseler Kunstverein, í Fridericianum í Kassel ásamt Jenny Michel, 2021.

Hlynur hefur tekið þátt í yfir 120 samsýningum á ferlinum. Nánari upplýsingar um verk hans má finna hér: www.hlynur.is

Verk eftir Hlyn er í safneignum Listasafns Reykjavíkur, Listasafns Íslands, Listasafnsins á Akureyri og Nýlistasafnsins auk einkasafna í Evrópu. Hlynur var safnstjóri Listasafnsins á Akureyri 2014-2024 og hefur einnig kennt við Myndlistarskólann á Akureyri, Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og unnið sem sjálfstætt starfandi sýningarstjóri og sett upp sýningar hjá Nýlistasafninu, Kuckei+Kuckei í Berlín, Kunstraum Wohnraum og Villa Minimo í Hannover, Kunstverein Hannover og hjá Chinati Foundation í Marfa, Texas. Hann var einn þeirra listamanna sem stofnuðu Verksmiðjuna á Hjalteyri 2008. Hlynur gaf út tímaritið Blatt Blað 1994-2016.

Sýningin í Leyni stendur yfir til 7. maí 2026 og er opin alla daga kl. 13-23.

Hlynur Hallsson 

Sumardagurinn fyrsti / Der erste Sommertag / The first day of summer

23. apríl – 7. maí 2026

Opnun kl. 20 fimmtudaginn 23. apríl 2026

Leyni, Hafnarstræti 95, 600 Akureyri

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!