Fjallabyggð hefur birt dagskrána vegna 17. júní og hana má kynna sér hér fyrir neðan. Fjölbreytt dagskrá verður í boði, bæði á Siglufirði og á Ólafsfirði.
Kl. 9:00 Lýðveldisfánar dregnir að húni á Siglufirði og í Ólafsfirði
Kl. 10:30-11:30 17. júní hlaup UMF Glóa, á Rammalóðinni Siglufirði. Fyrir börn 6 – 11 ára (ATH BREYTTUR TÍMI)
Kl. 12:00-12:30 Hátíðarathöfn við minnisvarða sr. Bjarna Þorsteinssonar við Siglufjarðarkirkju
Hátíðarávarp, Hanna Sigríður Ásgeirsdóttir
Nýstúdent leggur blómsveig að minnisvarða sr. Bjarna.
KL. 12:00 -13:00 Knattspyrnuleikur 7. og 8. flokkur KF á fótboltavellinum í Ólafsfirði.
Iðkendur mæta 11:45 við Vallarhús.
HÁTÍÐARDAGSKRÁ VIÐ TJARNARBORG
Kl. 13:00-15:00
Setning hátíðar
Hátíðarávarp, Ida Semey
Ávarp Fjallkonu; Sunna Eir Haraldsdóttir
Tónlistaratriði, Ástarpungarnir
- Hoppukastalar
- Sölubásar
- Frispígolf
- Minigolf
Kl. 15:00-16:00 Sparkvöllur við grunnskóla
Froðufjör í boði Slökkviliðs Fjallabyggðar – gott að koma með handklæði.
Kl. 16.00 Ljóðasetrið Siglufirði, Þórarinn Hannesson flytur lög og ljóð um Siglufjörð og eftir Siglfirðinga. Enginn aðgangseyrir.










