Mynd: Fjallabyggð

Bæjarráð Fjallabyggðar hafnar erindi frá Viking Heliskiing

Bæjarráð Fjallabyggðar hafnaði erindi frá Viking Heliskiing þar sem fyrirtækið óskaði eftir einkaafnotum af fjalllendi í eigu sveitarfélagsins til að stunda þyrluskíðamennsku á tímabilinu frá 1. mars til 20. júní ár hvert. Þetta kemur fram í grein á Trolli.is.

Í bókun bæjarráðs kemur fram að erindinu sé synjað þar sem aðrir aðilar stundi sambærilega starfsemi og rekstur innan Fjallabyggðar. Viking Heliskiing hefur aðsetur á Siglufirði og óskaði eftir heimild til afnota af fjalllendi sveitarfélagsins með það að markmiði að tryggja öryggi, skapa skýrari umgjörð um starfsemina og styrkja rekstrarumhverfi sitt til framtíðar.

Fulltrúi D-lista í bæjarráði, Tómas Atli Einarsson, lagði fram sérstaka bókun í tengslum við málið, þar sem hann leggur til að Fjallabyggð hefji formlegt samtal við rekstraraðila þyrluskíðafyrirtækja sem starfa innan sveitarfélagsins um framtíðarfyrirkomulag starfseminnar.

Í bókuninni er lögð áhersla á mikilvægi þess að móta skýra og gagnsæja umgjörð um afnot fjalllendis, öryggismál, jafnræði rekstraraðila og samráð áður en lengra er haldið. Málið var því afgreitt með synjun á beiðni Viking Heliskiing, en jafnframt óskað eftir frekari umræðu um framtíðarskipulag þyrluskíðamennsku innan sveitarfélagsins.

Hér má lesa greinina í heild sinni á vef Fjallabyggðar, Trolli.is.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!