Í gær, 19. janúar, voru endurnýjaðir til fimm ára rekstrar- og þjónustusamningar milli Akureyrarbæjar og fjögurra aðildarfélaga ÍBA. Þetta kemur fram á vef bæjarins.
Rekstrarsamningarnir snúa að framlagi Akureyrarbæjar og hlutverki íþróttafélaganna sem sjá um rekstur og starfsmannahald íþróttamannvirkja sem Akureyrarbær á að hluta eða að fullu.
Þjónustusamningarnir varða faglegt starf íþróttafélaganna og reiknast framlag Akureyrarbæjar til félaganna út frá iðkendafjölda hvers félags.
Aðildarfélög ÍBA sem endurnýjuðu samninga við Akureyrarbæ í dag voru Íþróttafélagið Þór, Hestamannafélagið Léttir, Golfklúbbur Akureyrar og Knattspyrnufélag Akureyrar.
Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Íþróttafélagsins Þórs
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Íþróttafélagsins Þórs
Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Knattspyrnufélags Akureyrar
Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Golfklúbbs Akureyrar
Rekstrarsamningur Akureyrarbæjar og Hestamannafélagsins Léttis
Þjónustusamningur Akureyrarbæjar og Hestamannafélagsins Léttis










