Nú hefur B.Hreiðarsson tekið að reisa efri hæð viðbyggingar Hrafnagilsskóla sem að auki mun hýsa stækkun íþróttamiðstöðvar Eyjafjarðarsveitar auk líkamsræktaraðstöðu. Greint er frá á vef Eyjafjarðarsveitar.
Þar segir að húsinu verði lokað í sumar og haust á meðan unnið verður í því að innan yfir veturinn en stefnt er á að framkvæmdum ljúki á árinu 2027. Samhliða framkvæmdum þar er unnið að umtalsverðum breytingum inni í skólahúsnæðinu og í anddyri íþróttamiðstöðvar, rým sem mun tengja skólann, nýtt bókasafnsrými og íþróttamiðstöð í glæsilegum kjarna.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Verkefnið er framhald af uppbyggingu leikskólans Krummakots og er ætlað að leiða til viðamikillar þjónustuaukningar fyrir íbúa sveitarfélagsins.










