Niðurstöður liggja nú fyrir í sveitarstjórnarkosningum í Eyjafjarðarsveit. Þar voru aðeins tveir listar í framboði, F-listinn og K-listinn. F-listinn sótti í sig veðrið frá síðustu kosningunum og bætti við sig einum fulltrúa á kostnað K-listans.
F-listinn fékk 62,7% atkvæða og 5 kjörna fulltrúa. K-listinn fékk 37,3% atkvæða og tvo kjörna fulltrúa.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Á kjörskrá voru 907 manns og kjörsókn var 74,9%.
Kjörnir fulltrúar
Hermann Ingi Gunnarsson (F)
Guðmundur Sigurbjörn Óskarsson (K)
Berglind Kristinsdóttir (F)
Gestur Júlíusson (F)
Linda Lárusdóttir (K)
Inga Vala Gísladóttir (F)
Hákon B. Harðarson (F)










