Móahverfi – áætlaðar malbikunarframkvæmdir í sumar

Í sumar verður unnið við malbikun gatna, stétta og stíga í Móahverfi ásamt grænum frágangi og frágangi á opnum svæðum. Einnig verður unnið við hellulögn, lagningu granítkantsteins og frágang stétta og stíga víða um hverfið. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar þaðan sem eftirfarandi upplýsingar eru fengnar:

Framkvæmdir frá miðjum maí fram í miðjan júlí

Áætlað er að vinna fari fram á eftirfarandi götum:

  • Hrísmói
  • Holtamói
  • Síðubraut frá Austursíðu að Borgarbraut
  • Borgarbraut að Langamóa og Bröttusíðu
  • Langimói norður fyrir Hrísmóa
  • Lautarmói
  • Lyngmói
  • Lækjarmói

Framkvæmdir frá miðjum ágúst og fram á haust

Áætlað er að vinna fari fram við:

  • Borgarbraut frá Síðubraut að Bröttusíðu
  • 1–2 íbúðargötur til viðbótar, eftir stöðu byggingarframkvæmda við þær götur

Stéttar og stígar

Í sumar og haust verður einnig unnið við:

  • Gangstétt í Hrísmóa
  • Stíga frá Holtamóa niður að Vestursíðu

Aðrir stígar verða malbikaðir þar sem aðstæður leyfa og verða þær framkvæmdir kynntar síðar í sumar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!