Listasumar 2026 hefst fimmtudaginn 25. júní og stendur til 18. júlí. Einn af hápunktum hátíðarinnar verður á opnunardaginn þegar Gilfélagið á Akureyri býður gestum og gangandi á dansiball í göngugötunni. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar.
Á dagskrá hátíðarinnar eru einnig skapandi vinnustofur, litrík töfrasýning, tónlistaratriði, uppistand, myndlistarsýningar og margt fleira.
„Á dagskrá eru fjölbreyttir viðburðir sem fara fram um allan bæ,“ segir Elísabet Ögn Jóhannsdóttir, verkefnastjóri Listasumars, sem mælir með að bæjarbúar og gestir kynni sér dagskrána.
„Öll ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi og nýtt tækifærið til að njóta þeirra fjölmörgu menningar- og skemmtiviðburða sem í boði eru,“ segir Elísabet Ögn.
Aðgangur er ókeypis á alla viðburði Listasumars.
Nánari upplýsingar og dagskrá má finna á www.listasumar.is










