Akureyrarbær gaf út í dag dagskrána fyrir hátíðarhöldin sem munu fara fram þann 17. júní þar sem fjölbreytt dagskrár verður í boði fyrir alla fjölskylduna. Hér fyrir neðan má sjá það sem verður í boði.
Skrúðganga Skátafélagsins Klakks og Lúðrasveitar Akureyrar leggur af stað frá Gamla húsmæðraskólanum við Þórunnarstræti kl. 12.30 og heldur suður í Lystigarðinn þar sem formleg hátíðarhöld fara fram. Öll eru hvött til að mæta og taka þátt í skrúðgöngunni.
Blómabíll Akureyrar leggur af stað frá Naustaskóla kl. 11.00 og ekur um íbúðahverfi bæjarins. Frá palli bílsins munu óma sígild 17. júní lög og eru bæjarbúar hvattir til að hlusta eftir tónlistinni og veifa að blómabílnum þegar hann fer hjá.
Hátíðarhöld í Lystigarðinum hefjast kl. 13.00 með fánahyllingu, tónlistarflutningi Lúðrasveitar Akureyrar undir stjórn Sóleyjar Bjarkar Einarsdóttur, bænagjörð og blessun Jóhönnu Gísladóttur prests, söng Kórs eldri borgara undir stjórn Petreu Bjarkar Pálsdóttur, ávarpi fjallkonunnar Önnu Maríu Antonsdóttur, nýstúdents frá Menntaskólanum á Akureyri, og ávarpi bæjarstjóra, Berglindar Óskar Guðmundsdóttur.
Að formlegri dagskrá lokinni tekur við fjölskylduskemmtun þar sem fram koma meðal annars Vilhjálmur B. Bragason bæjarlistamaður Akureyrar, dansarar frá Steps og DSA, Mahaut Matharel sumarlistamaður Akureyrar, söngkonan unga Karólína Orradóttir, Jónsi og Erna Hrönn og að lokum Hvolpasveitin.
Á MA-túni og víðar verður fjölbreytt afþreying, hoppukastalar, andlitsmálning, frisbígolf, götukörfubolti, pokavarp, skotfimi með laserbyssum, skátatívolí og fjölbreytt úrval matarvagna.
Boðið verður upp á siglingu með Húna II kl. 16.30 frá Fiskihöfninni norðan við ÚA. Siglingin tekur um 45 mínútur og verður bætt við aukasiglingu kl. 17.30 ef eftirspurn verður mikil.
Nákvæmari dagskrá og kort af svæðinu má sjá hér.










