Grös: Nýtt kaffihús og bistró í Skúlagarði 

Í þessari viku opnar bistró-staðurinn Grös dyr sínar í veitingasal Skúlagarðs í Kelduhverfi.  

Opnun staðarins helst í hendur við byggingu gróðurhúss við Hótel Skúlagarð, með það fyrir augum að bjóða gestum upp á eigin grænmeti þegar líður á sumarið. Annað á matseðli kemur líka úr nágrenninu; súpukjöt frá Árdal og lax úr landeldi Samherja í Öxarfirði, svo dæmi séu tekin. 

Grös er bistró og kaffihús með grænar áherslur en líka með eitthvað fyrir alla.  Hugmyndin er að bjóða næringaríkan mat á góðu verði. 

Hjónin Egill Bjarnason og Sigrún Björg Aðalgeirsdóttir tóku við Hótel Skúlagarð fyrir þremur árum og hafa á þeim tíma ráðist í talsverðar endurbætur á húsnæðinu. Síðastliðinn vetur var farið í matsal hússins, þann hluta sem hét  „efri salur“ þegar Skúlagarður var félagsheimili og heimavistarskóli. 

Sumarið fer vel af stað á hótelinu og greinilegt að stöðugt fleiri ferðamenn aka Dettifossveg og Demantshring á ferð sinni um Norðurland. Með opnun Grös hafa ferðamenn enn eina ástæðuna til þess að aka þessa leið, enda fátt skemmtilegra en ferðalag um fallega sveit á góðum sumardegi. 

Nánar á www.gros.is

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!