Eyfirska hljómsveitin Helgi og Hljóðfæraleikararnir stigu síðast saman á svið í lok árs 2024, en koma nú aftur saman þann 16. júní næstkomandi á Græna Hattinum á Akureyri. Þetta kemur fram á mbl.is.
Helgi og Hljóðfæraleikararnir hafa fyrir löngu skipað sér fastan sess í hugum og hjörtum Eyfirðinga. Brynjólfur Brynjólfsson, gítarleikari hljómsveitarinnar, segir í samtali við mbl.is að engu verði lofað um áframhaldandi tónleikahald, en er jákvæður gagnvart því að hljómsveitin komi saman að minnsta kosti tvisvar til þrisvar á ári. „Við eigum alveg eftir að ræða það; við erum bara búnir að taka tvær æfingar. En, já, það verður ábyggilega eitthvað meira, enda er það lífsmáti að vera í þessari hljómsveit og ég hef enga trú á því að menn geti haldið sig frá þessu,’’ segir Brynjólfur.
Viðtalið við Brynjólf má finna á vef mbl.is með því að smella hér.










