Ljósmynd: Akureyri.is

Varðskipið Þór tekur á móti gestum á Akureyri

Landhelgisgæsla Íslands býður almenningi að heimsækja varðskipið Þór laugardaginn 18. apríl frá kl. 13-16. Heimsóknin er liður í hátíðarhöldum vegna 100 ára afmælis stofnunarinnar, af því tilefni hefur Landhelgisgæslan ferðast víða um land og boðið landsmönnum að kynna sér starfsemina.

Á morgun, fimmtudag, og á föstudag hefur miðstigi grunnskóla á Akureyri verið boðið að heimsækja skipið og skoða búnað þess. Gert er ráð fyrir að þyrla Landhelgisgæslunnar lendi á bryggjunni á morgun og fá nemendur Brekkuskóla, sem þá verða í heimsókn, sérstakt tækifæri til að skoða þyrluna líka.

Landhelgisgæslan er með töluverða viðveru á Akureyri þessa daga, meðal annars vegna leitar- og björgunarráðstefnu sem fram fer á morgun á vegum Varðberg, auk afmælishátíðarinnar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!