Umfangsmikilli lögreglu- og sérsveitaaðgerð fór fram við Gránufélagsgötu á Akureyri í gær sem lauk á öðrum tímanum í nótt. Einn gistir í fangaklefa að sögn Heimis Heiðarssonar, varðstjóra hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Hann staðfesti í samtali við RÚV í gær að sérsveit ríkislögreglustjóra hafi tekið þátt í aðgerðinni. Greint er frá á vef RÚV.
Í umfjöllun RÚV segir að lögregla hafi verið með mikinn viðbúnað þegar hæst lét og samkvæmt ábendingu sem fréttastofunni bars voru ekki færri en fjórir lögreglubílar og einn sjúkrabíll á vettvangi.
„Það var ágreiningur á milli tveggja aðila, líkamsárás og einhverjar hótanir,“ segir Jóhann Olsen, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra í samtali við Vísi.is vegna málsins.
Í umfjöllun Vísis um málið segir að einn hafi verið handtekin og annar hafi verið fluttur á sjúkrahús en sá aðili sé ekki talinn í lífshættu. Aðgerðir hafi hafist um tíu leytið og lokið á öðrum tímanum í nótt. Í dag verði þeir sem komu að málinu yfirheyrðir og næstu skref metin.









