Ljósmynd: tjorneshreppur.is

T-listinn sjálfkjörinn í Tjörneshreppi

Einungis einn listi barst til kjörnefndar Tjörneshrepps fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar, T-listi Tjörneshrepps. Hann er því sjálfkjörinn til hreppsnefndar.

T-listi Tjörneshrepps

  1. Aðalsteinn J. Halldórsson, Ketilsstöðum
  2. Jón Gunnarsson, Árholti
  3. Katý Bjarnadóttir, Héðinshöfða 2
  4. Smári Kárason, Breiðuvík
  5. Sveinn Egilsson, Sandhólum
  6. Hulda Ellý Jónsdóttir, Kvíslarhóli
  7. Jónas Jónasson, Héðinshöfða 2
  8. Sigurbjörg Sveinbjörnsdóttir, Mýrarkoti
  9. Eyrún Dögg Guðmundsdóttir, Árholti
  10. Sigríður Hörn Lárusdóttir, Héðinshöfða 2

Efstu fimm sæti listans eru öll skipuð núverandi aðalmönnum í hreppsnefnd Tjörneshrepps. Fjögur af neðri fimm sætunum eru skipuð núverandi varamönnum í hreppsnefnd. Eina breytingin frá núverandi uppstillingu er því að Hulda Ellý Jónsdóttir kemur inn sem nýr varamaður í stað Marý Önnu Guðmundsdóttur.

Aðeins einn listi hafði borist þegar framboðsfrestur rann út þann 10. apríl síðastliðinn. Kjörstjórn lýsti því þá yfir að fresturinn yrði framlengdur um tvo sólarhringa og ef ekkert framboð hefði borist að framlengda frestinum loknum yrði listinn sem búið var að leggja fram sjálfkjörinn. Það var svo í gær sem það var tilkynnt á heimasíðu Tjörneshrepps að svo hefði farið.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!