Skúta er laus eftir að stranda fyrir utan Gásir

Um fimmleytið í dag barst útkall vegna skútu sem varð strand innarlega í Eyjafirði. Tveir voru um borð og eru sagðir óhultir en mbl.is greindi fyrst frá.

Skútan er nú laus að sögn björgunarsveitamanna sem voru við aðstoðarstörf hjá Gásum en skútan strandaði þar rétt fyrir utan.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!