Samið um rekstur MAk til næstu fjögurra ára

Síðasta föstudag undirrituðu Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, og Eva Hrund Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar (MAk), nýjan samning Akureyrarbæjar og MAk um rekstur menningarfélagsins til ársloka 2029. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.

Samningurinn nær til reksturs Leikfélags Akureyrar (LA) og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands (SN), sem og Menningarhússins Hofs og Samkomuhússins á Akureyri.

Í tilkynningu Akureyrarbæjar segir að meginmarkmið með starfsemi MAk séu:

  1. Öruggur rekstur og góð meðferð og nýting opinberra fjármuna,
  2. að halda úti og efla atvinnustarfsemi í leiklist og sinfónískri tónlist á Norðurlandi,
  3. að stuðla að auknu framboði og fjölbreytileika í menningar- og listalífi Norðurlands,
  4. að bjóða upp á fyrirmyndarvettvang fyrir tónlistar- og sviðslistaviðburði, fundi og ráðstefnur á Norðurlandi,
  5. að leitast við að ná til ólíkra hópa samfélagsins með fjölbreyttu framboði viðburða,
  6. að bjóða upp á viðburði sem auka menningarlæsi gesta á öllum aldri og tryggja að reglulega verði boðið upp á vandaða viðburði fyrir börn sem og reglulegar kynningar fyrir nemendur leik- og grunnskóla.

Undirritaðan samninginn má nálgast hér.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!