Akureyrarbær og Ungmennafélag Akureyrar (UFA) hafa gert með sér styrktarsamning um framkvæmd árlegra frjálsíþróttaviðburða á árunum 2026–2028. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar en markmiðið er að efla þátttöku grunnskólabarna og almennings í íþróttum.
UFA mun standa fyrir 1. maí hlaupinu, grunnskólamóti í frjálsum íþróttum og Akureyrarhlaupinu. Félagið sér um framkvæmd og skipulag viðburðanna.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Akureyrarbær leggur til 600 þúsund krónur árlega auk þjónustu, svo sem aðkomu að öryggismálum, aðstöðu og frían aðgang þátttakenda að Sundlaug Akureyrar í tengslum við hlaupin.
Samningurinn gildir til loka árs 2028 og styður við áframhaldandi uppbyggingu íþróttastarfs í bænum.










