„Óútgefin prófskírteini“ er sýning sem hefur ferðast um heiminn til að heiðra minningu 40 úkraínskra námsmanna sem munu aldrei útskrifast þar sem þeir létu lífið í innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022. Sýningin opnar á Bókasafni Háskólans á Akureyri þann 19. maí næstkomandi klukkan 14:00 og verður opin fram til 2. júní.
Jafnréttiskólinn (GRÓ GEST), ásamt Úkraínuverkefni Háskóla Íslands og Háskólanum á Akureyri, er gestgjafi sýningarinnar.
Á prófskírteinin er rituð saga nemendanna sem létust í blóma lífsins – þessi tákn menntunar standa eftir sem minnisvarðar um skarð sem aldrei verður fyllt. Markmið sýningarinnar er minna umheiminn á yfirstandandi stríð og það gjald sem Úkraínumenn greiða á degi hverjum í baráttu sinni fyrir frelsi.
Daryna Zavhorodnia sem nú stundar nám við GRÓ GEST einn af upphafsmanneskjum sýningarinnar sem hefur verið sett upp í ólíkum háskólum og söfnum í yfir fjörutíu löndum. Daryna mun kynna sýninguna og verkefnið á opnuninni.
ÖLL VELKOMIN!










