Nýr verkefnastjóri markaðsmála og miðlunar hjá Markaðsstofu Norðurlands

Signý Jónasdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri markaðsmála og miðlunar hjá Markaðsstofu Norðurlands. Starfið var auglýst í febrúar síðastliðnum. Verkefnastjóri vinnur í nánu samstarfi við ferðaþjónustuaðila og sveitarfélög á öllu Norðurlandi að þróun og markaðssetningu áfangastaðarins. Hún kemur til starfa hjá MN 1. júní. Þetta kemur fram í tilkynningu Markaðsstofu Norðurlands í dag.

Starfsstöð Signý verður á Akureyri og hún þekkir Norðurland vel og hefur byggt upp tengslanet og þekkingu á þeim áskorunum og tækifærum sem svæðið býr yfir. Hún lauk MMM-gráðu í markaðsfræði frá Háskólanum á Bifröst og BS-prófi í ferðamálafræði frá Háskóla Íslands árið 2019.

Signý hefur um tíu ára starfsreynslu innan ferðaþjónustunnar, þar af tæplega fjögur ár á sviði sölu- og markaðsmála. Í núverandi starfi hjá Norðursigling hefur hún sinnt daglegri sölu, viðhaldi viðskiptatengsla og þátttöku í kynningum og markaðsaðgerðum. Áður starfaði hún í markaðsmálum hjá Bruggsmiðjunni Kalda, auk þess sem hún hefur reynslu úr ferðaþjónustu á alþjóðlegu sviði, m.a. frá Eleven Experience – Deplar Farm og Bláa Lóninu.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!