Akureyrarbær og Grófin geðrækt hafa undirritað nýjan samstarfssamning um þjónustu Grófarinnar á Akureyri til ársloka 2028. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar í dag.
Þar segir að markmið samningsins sé að efla Grófina í hlutverki sínu sem geðræktarmiðstöð. Ennfremur að auka tengsl og samvinnu Grófarinnar og þeirra aðila innan bæjarfélagsins sem vinna með fólki sem glímir við geðraskanir.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Grófin veitir fullorðnum einstaklingum með geðraskanir samastað til bataferlis með aukinni virkni, jafningjastuðningi, hópastarfi og stuðningssamtölum. Lögð er áhersla á að skapa tækifæri til bata á eigin forsendum og án tímamarka.









