Grímsey hefur hlotið styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða upp á kr. 10.636.605 til að bæta aðgengi og öryggi á einni vinsælustu gönguleið eyjarinnar – leiðinni að heimskautsbaugstákninu við Básavík. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Með verkefninu verður gönguleiðin lagfærð þar sem hún liggur um blautt mólendi þar sem stórir drullupollar hafa torveldað umferð og skapað slysahættu. Lögð verða dren undir stíginn til að stýra vatnsflæði og draga úr pollamyndun, auk þess sem dældir verða fylltar og stígurinn jafnaður. Markmiðið er að gera leiðina þurrari, öruggari og aðgengilegri fyrir bæði ferðamenn og heimamenn.
Jafnframt verður sett upp upplýsingaskilti við Básavík sem fræðir gesti um lundann og varar við hættunni sem skapast getur vegna lundahola við bjargbrúnir.










