Mynd: Jóndís Inga Hinriksdóttir

KATA gefur út lagið Faded moments

Akureyringurinn KATA eða Katrín Mist Haraldsdóttir var að senda frá sér nýtt lag í dag, 17.apríl, sem ber heitið Faded moments. Lagið er eins konar Rómeo og Júlíu saga og fjallar um forboðnar ástir.

Lagið er samið af henni sjálfri ásamt Stefáni Erni Gunnlaugssyni sem sá einnig um produceringu, hljóðfæraleik og mix. Textan samdi KATA og mastering var í höndum Steindórs Guðmundssonar.

Katrín Mist hefur komið víða við undanfarin ár en hún er einnig leikkona og lék meðal annars í sýningunum Níu Líf, Emil í Kattholti og Matthildur í Borgarleikhúsinu. Síðasta vetur lék hún í sýningunni Litla hryllingsbúðin hjá Leikfélagi Akureyrar.

Faded moments er annað lag Kötu en fyrsta lagið hennar hét „og ég flýg“ og kom út 2024.

Faded moments er fyrsta lagið af komandi EP plötu Kötu sem er í vinnslu.

Hlusta á Faded moments: 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!