Karlalið KA í handbolta er komið í sumarfrí eftir þriðja tap liðsins gegn Val í undanúrslitaeinvíginu í Olís-deild karla. Leiknum lauk með 38-34 sigri Vals á Hlíðarenda og með sigrinum tryggði Valur sér sæti í úrslitaeinvíginu.
KA menn byrjuðu leikinn af krafti og leiddu með fjórum mörkum gegn einu í upphafi leiksins. Valsmenn náðu að komast aftur inn í leikinn með fjórum mörkum í röð og liðin skiptust á að leiða þar til Valsmenn náðu fjögurra marka forskoti fyrir hálfleik. 19-15 stóðu leikar í hálfleik.
KA menn náðu að minnka forskotið niður í tvö mörk í síðari hálfleik en að lokum náðu Valsmenn fjögurra marka forskoti á ný og leiknum lauk með fjögurra marka sigri Vals.
KA menn komast því ekki í úrslitaviðureignina þetta árið en geta gengið stoltir af velli eftir frábært tímabil.










