Ljósmynd: Dalvíkurbyggð

K-listi og Framsókn mynda meirihluta í Dalvíkurbyggð

K-listi Dalvíkurbyggðar og Framsóknarflokkurinn og óháðir hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar fyrir kjörtímabilið 2026–2030. Með samstarfinu mynda flokkarnir fjögurra manna meirihluta af sjö fulltrúum sveitarstjórnar.

Helgi Einarsson verður formaður byggðarráðs á kjörtímabilinu og Monika Margrét Stefánsdóttir tekur við embætti forseta sveitarstjórnar. Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir verður áfram sveitarstjóri.

„Við höfum náð góðu samkomulagi um þau verkefni sem framundan eru og teljum að þessi meirihluti sé vel í stakk búinn til að leiða sveitarfélagið áfram á næstu árum. Áframhaldandi starf Eyrúnar sem sveitarstjóra skapar mikilvægan stöðugleika og samfellu í rekstri og stjórnsýslu sveitarfélagsins,“ segir í yfirlýsingu nýs meirihluta á vef Dalvíkurbyggðar.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!