KA/Þór hefur fengið til liðs við sig Ingibjörgu Hauksdóttur. Ingibjörg kemur norður frá norska félaginu Flint Tønsberg þar sem hún hefur spilað undanfarin 13 ár. Greint er frá í tilkynningu á vef KA í dag.
„Ingibjörg er afar spennandi og öflugur markvörður sem mun klárlega styrkja okkar metnaðarfulla starf en KA/Þór sem lék sem nýliði í efstudeild á nýliðnum handboltavetri komst í undanúrslit í bikarnum auk þess að komast í sjálfa úrslitakeppnina. Við bjóðum Ingibjörgu hjartanlega velkomna í KA/Þór og hlökkum svo sannarlega til að sjá til hennar í KA-Heimilinu á komandi vetri,“ segir í tilkynningu KA.
Með Flint hefur Ingibjörg leikið í 2. deild auk U20 og U18 liða félagsins. Flint situr sem stendur í 7. sæti í 2. deild og er liðið á leið í úrslitakeppni Norgesmesterskap í U19. Þá varð félagið bikarmeistari Austurlands í U20. Ingibjörg á einnig að baki landsleiki með U18 landsliði Íslands og var meðal annars valin maður leiksins gegn Angólu á móti í Kína. Þess má einnig geta að hún varð Noregsmeistari í U17 (Bring) á sínum tíma.










