Helgi Þórsson frá Kristnesi var kosinn formaður Skógræktarfélags Eyfirðinga á aðalfundi félagsins í mars. Sigurður Hólm Sæmundsson baðst undan áframhaldandi formennsku á fundinum. Fjallað er um fundinn á vef skógræktarfélagsins.
Í stjórn eru sjö aðalmenn og þrír til vara. Hver stjórnarliði er kosinn til þriggja ára í senn og hver varastjórnarliði er kosinn til eins árs í senn. Hin nýja stjórn er þannig skipuð:
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
Formaður: Helgi Þórsson.
Varaformaður: Sigurður Hóm Sæmundsson.
Ritari: Helga Ösp Jónsdóttir
Gjaldkeri: Rebakka Kristín Garðarsdóttir.
Meðstjórnendur: Sigurður Arnarson, Gunnar Már Gunnarsson, Ásgeir Þór Ásgeirsson.
Varamenn: Tryggvi Marinósson, Alfa Dröfn Jóhannsdóttir, Ísak Már Jóhannesson.










