Hamingja er komin út

Verk Mars Baldurs er komið út í Pastel ritröð hjá Flóru menningarhúsi í Sigurhæðum á Akureyri. Verkið ber titilinn Hamingja og er einstaklega fimlega rituð og grípandi smásaga. Mars er nemandi í nútímafræði við Háskólann á Akureyri og hefur hlotið Ungskálda verðlaun Akureyrarbæjar.

Hamingja er eins og önnur Pastel verk gefið út í 100 númeruðum og árituðum eintökum og verður ekki endurútgefið. Verkið er númer 41 í Pastel ritröð, en Flóra hefur nú staðið að ritröðinni í áratug, lengst af í samstarfi við Menningarsjóð Akureyrar, listamenn ritraðarinnar, Uppbyggingasjóð Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi Eystra, Útgáfufélagið og fleiri góða aðila.

Pastelritin eru útlitshönnuð og sett upp fyrir prentun hjá Cave Canem hönnunarstofu og er prentun í umsjón Prentsmiðjunnar á Akureyri.

Hægt er að nálgast eintak á www.pastel.is og útgáfuhóf verður í Sigurhæðum á sumardaginn fyrsta.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!