Dagana 26.–27. mars fór fram námskeiðið Basic for nurses á Sjúkrahúsinu á Akureyri (SAk), þetta er í fyrsta sinn sem námskeiðið er haldið þar. Um er að ræða alþjóðlega staðlaða kennslu í grunnatriðum gjörgæsluhjúkrunar sem nýtir bæði bóklega og verklega þjálfun. Alls sóttu tíu hjúkrunarfræðingar sem nýlega hafa hafið störf á gjörgæsludeild SAk námskeiðið, auk eins hjúkrunarfræðings frá gjörgæsludeild Landspítala við Hringbraut.
„Það er virkilega jákvætt að geta staðið fyrir námskeiði sem þessu á SAk,“ segir Helga Dögg á vef SAk. „Stöðluð kennsla sem þessi er mikilvægur liður í því að styðja við og efla þá sérhæfðu hjúkrun sem á sér stað á gjörgæsludeild.“
„Með tilkomu námskeiðsins á SAk skapast ný tækifæri til að efla faglega þekkingu og styðja við markvissa aðlögun nýrra hjúkrunarfræðinga á gjörgæsludeild, sem er lykilþáttur í að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar,“ segir Helga Dögg enn fremur.










