Setningarathöfn Andrésar Andarleikanna fer fram næsta miðvikudag 22. apríl og hefst með skrúðgöngu frá Dalsbraut að Íþróttahöllinni. Gönguleiðin er merkt með rauðu á mynd neðst í fréttinni og götulokanir með gulu. Greint er frá í tilkynningu á vef Akureyrarbæjar.
Vegna athafnarinnar verða eftirfarandi götulokanir í gildi:
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
- Dalsbraut milli Skógalundar og KA-heimilis verður lokuð kl. 18.00-19.15.
- Dalsbraut frá Þingvallarstræti að KA-heimili verður lokuð kl. 18.50-19.15.
- Þingvallarstræti milli KA-heimilis og bílastæðis við Hótel Berjaya Akureyri verður lokað fyrir akstur í báðar áttir kl. 19.00–-19.30. Ekki verður hægt að beygja inn á Þingvallarstræti frá Mýrarvegi og Byggðarvegi á þeim tíma.
- Byggðarvegur frá Þingvallarstræti að Hrafnagilsstræti verður lokaður kl. 19.10-19.40. Ekki verður hægt að beygja inn á Mýrarveg frá Vanabyggð og Norðurbyggð né frá Hrafnagilsstræti vestan Byggðarvegar á þeim tíma.
- Hrafnagilsstræti frá Byggðarvegi að Laugargötu verður lokað kl. 19.15-19.45.
- Gatnamót Þórunnarstrætis og Hrafnagilsstrætis verða lokuð um kl. 19.20-19:50.
- Hrafnagilsstræti rétt ofan við Mörðuvallarstræti verður lokað kl. 19.15-19.50.
Skrúðgangan mun fara norður Laugargötu og vestur Skólastíg áður en beygt er inn á bílastæði við Íþróttahöllina og Sundlaug Akureyrar. Á þeim tíma, frá um kl. 19.25-19.55, verður svæðið lokað fyrir akandi umferð. Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að sýna lokununum skilning með tilliti til öryggis.











