Fyrsta kosningaskrifstofan í sögu sveitarfélagsins

Síðastliðinn föstudag, 10. apríl, var kosningaskrifstofa D-lista sjálfstæðismanna og óháðra í Hörgársveit opnuð í húsi gamla B. Jensen að Lónsbakka. Í tilkynningu frá flokknum segir að um sé að ræða fyrstu og einu kosningaskrifstofu í sögu sveitarfélagsins og jafnframt sé þetta í fyrsta skipti í rúmt ár sem líf færist á ný í hús gamla B. Jensen eftir að það var selt.

Tæplega 100 manns mættu á opnunina, sem jafngildir um 10% íbúa Hörgársveitar og skapaðist þar lífleg og jákvæð stemning. Gestir nutu veitinga og áttu góð samtöl við frambjóðendur. Einnig var boðið upp á pöbb kviss fyrir gesti.

Kosningaskrifstofan verður opin fimmtudaga og föstudaga á út apríl og svo alla virka daga í maí og er öllum velkomið að líta við, hitta frambjóðendur og ræða málefni sveitarfélagsins í óformlegu og aðgengilegu umhverfi.

Hér má sjá myndir frá opnuninni:

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!