Íþróttamiðstöðin í Hrísey

Fræðslu- og lýðheilsuráð tekur jákvætt í hugmyndir um sparkvöll í Hrísey

Á fundi hverfisráðs Hríseyjar þann 10. mars síðastliðinn var erindi varðandi uppbyggingu sparkvallar við Íþróttamiðstöðina í Hrísey vísað til fræðslu- og lýðheilsuráðs Akureyrarbæjar. Fræðslu- og lýðheiðsluráð bæjarins ræddi svo hugmyndina á fundi 8. apríl þar sem tekið var jákvætt í erindi hverfisráðs Hríseyjar.

Fræðslu- og lýðheilsuráð vísaði erindinu til umhverfis- og mannvirkjaráðs og óskaði eftir því að verkefnið verði sett á dagskrá svo fljótt sem auðið er.

Á aðalfundi Ungmennafélagsins Narfa þann 24. febrúar síðastliðinn var samþykkt að setja það efst á stefnuskrá félagsins að koma upp litlum sparkvelli fyrir ofan Íþróttamiðstöðina í Hrísey. Hrund Teitsdóttir, formaður Narfa og Þórunn Arnórsdóttir, skólastjóri Hríseyjarskóla óskuðu eftir aðstoð hverfisráðsins til að koma málinu í farveg.

„Við teljum að sparkvöllur muni bæta aðstöðu til útivistar og hreyfingar fyrir börn og íbúa eyjarinnar. Málefni sparkvallar í Hrísey hafa verið lengi í umræðunni og hefur málið strandað á framkvæmd og kostnaði. Niðurstöður samræðna Ungmennafélagsins, Hríseyjarskóla, foreldra og barna í Hrísey hafa hins vegar leyst þann vanda því við teljum ekki þörf á sparkvelli í fullri stærð,“ skrifa þær í beiðni sinni.

Svæðið sem áætlað er fyrir sparkvöll er fyrir ofan Íþróttamiðstöðina og býður ekki upp á nema 200 fermetra völl. Það er um þriðjungur af stærð dæmigerðra sparkvalla. Þar er nú þegar grasvöllur sem börn spila á en svæðið er oft undir snjó og á vorin og haustin verður svæðið blautt.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!