Mynd af Facebooksíðu viðburðarins

Fornbílar keyra eftir göngugötunni í sumar

Skipulagsráð samþykkti á fundi sínum 29. apríl sl. að veita fornbíladeild Bílaklúbbs Akureyrar heimild til að keyra eftir göngugötunni tvisvar á kvöldi hvert miðvikudagskvöld í sumar til loka september. Þetta kemur fram á vef Akureyrarbæjar, þar kemur einnig fram að síðustu sumur hefur fornbílum verið stillt upp við Menningarhúsið Hof á miðvikudagskvöldum og núna verður rúntinum í gegnum miðbæinn bætt við dagskrána.

Fyrstu ferðirnar verða farnar kvöldið 13. maí. Bílstjórarnir hittast á fornbílum sínum við Hof kl. 20 og síðan verður farinn rúntur um miðbæinn kl. 20.15 áður en bílunum verður stillt upp á planinu vestan við Borgarbíó.

Viðburðurinn á Facebook.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!