Í dag var undirritaður samningur Akureyrarbæjar og Viðburðastofu Norðurlands, fyrir hönd félagasamtakanna Vina Akureyrar, um framkvæmd fjölskylduhátíðarinnar Einnar með öllu til næstu þriggja ára. Akureyrarbær styrkir framkvæmd hátíðarinnar og sameiginlegt markmið samningsaðila er að virkja sem flesta hagsmunaaðila til stuðnings við hátíðina og helstu viðbragðsaðila sem þurfa að koma að þegar margir gestir stefna til bæjarins á sama tíma.
Ein með öllu er fjölskyldu- og barnvæn hátíð. Öll markaðssetning og skipulagning viðburða skal taka mið af því. Markmiðið er að laða fjölskyldufólk til Akureyrar og bjóða fjölskyldum í bænum upp á fjölbreytta viðburði. Veigamiklir viðburðir verða í boði án endurgjalds fyrir gesti svo sem Skógardagur í Kjarnaskógi og lokatónleikar hátíðarinnar á sunnudagskvöldi,“ segir á vef Akureyrarbæjar.










