Laugardaginn 18. apríl næstkomandi verður boðið upp á einstakan leiktíma fyrir fjölskyldur á Akureyri undir yfirskriftinni „Kuðl og kyrrð.“ Um er að ræða hlýjan og styrkjandi tíma þar sem leikur, nánd og slökun fá að njóta sín – innblásið af brasilísku jiu-jitsu og jóga. Leiktíminn fer fram í Sjálfsrækt, Brekkugötu 3b.
Að baki verkefninu standa þau Halldór Logi og Björg Halldórsdóttir, sem bæði hafa áralanga reynslu af vinnu með börnum og unglingum. Halldór er einn fremsti keppandi landsins í brasilísku jiu-jitsu og hefur starfað sem þjálfari barna í yfir áratug. Björg er jógakennari og þroskaþjálfi með sérþekkingu á núvitund og áfallamiðaðri nálgun. Saman hafa þau þróað tíma þar sem fjölskyldumeðlimir fá tækifæri til að tengjast í gegnum öruggan, kraftmikinn leik, svokallað „rough play“ og taka svo róandi æfingar í kjölfarið sem styðja við líkama og huga. Markmiðið er að efla tengsl, auka sjálfstraust og skapa rými fyrir bæði ærslagang og kyrrð.
Þetta er í þriðja sinn sem Halldór og Björg standa fyrir svona tíma. Halldór segir í samtali við Kaffið að fyrri skiptin hafi gengið afskaplega vel og að uppselt hafi verið í báða hópa í bæði skiptin.
Vegna mikillar eftirspurnar hefur nýr aldurshópur verið bætt við að þessu sinni og er námskeiðið nú opið börnum á aldrinum 3–9 ára ásamt foreldrum eða forráðamönnum. Engin fyrri reynsla í jiu-jitsu eða jóga er nauðsynleg og eru allir velkomnir.
Nánari upplýsingar má finna á Facebook viðburði fyrir tímann mep því að smella hér. Skráningar og fyrirspurnir má senda á netfangið halldorlogiv@gmail.com











