Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Langanesbyggð liggja nú fyrir. Lokatölur voru birtar á heimasíðu sveitarfélagsins í morgun. Engir framboðslistar bárust kjörstjórn að þessu sinni, svo kosningarnar voru óbundnar og allir kjörgengir íbúar í framboði. Á kjörskrá voru 454 manns og kjörsókn var 57,9%.
Kjörnir fulltrúar
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?
1: Mateusz Swierczewski (118 atkvæði)
2: Jóhann Hafberg Jónasson (115 atkvæði)
3: Júlíus Þröstur Sigurbjartsson (103 atkvæði)
4: Christina Elisabeth Merkel (93 atkvæði)
5: Ólína Ingibjörg Jóhannesdóttir (91 atkvæði)
6: Sigurður Ragnar Kristinsson (91 atkvæði)
7: Sigurður Þór Guðmundsson (83 atkvæði)











