Lokatölur í Dalvíkurbyggð – K-listinn stærstur

Niðurstöður liggja nú fyrir í sveitarstjórnarkosningum í Dalvíkurbyggð og lokatölur komnar í hús.

K-listi Dalvíkurbyggðar er þar afgerandi sigurvegari með 47,9% atkvæða og þrjá fulltrúa kjörna. Fulltrúafjöldi þeirra er því óbreyttur frá núverandi fyrirkomulagi.

D-listi Sjálfstæðisflokksins missir umtalsvert fylgi frá síðustu kosningum en heldur þó sínum tveim fulltrúum.

B-listi Framsóknarflokksins missir einnig fylgi og fer frá tveim fulltrúum niður í einn.

Svo virðist sem fylgismissir D og B listanna hafi skilað sér að miklu leyti til nýja framboðsins, A-lista Byggðalistans, sem hlaut 12,5% atkvæða og nær því inn einum fulltrúa.

Kjörsókn í sveitarfélaginu var með góðu móti, 74,6%

Atkvæðaskipting

K-listi Dalvíkurbyggðar: 47,9% atkvæða – 3 kjörnir fulltrúar

D-listi Sjálfstæðisflokks: 24,1% atkvæða – 2 kjörnir fulltrúar

B-listi Framsóknarflokks: 15,4% atkvæða – 1 kjörinn fulltrúi

A-listi Byggðalistans: 12,5% atkvæða – 1 kjörinn fulltrúi

Kjörnir fulltrúar

Helgi Einarsson (K)

Benedikt Snær Magnússon (D)

Katrín Sif Ingvarsdóttir (K)

Magni Þór Óskarsson (K)

Monika Margrét Stefánsdóttir (B)

Börkur Þór Ottósson (A)

Bessi Ragúels Víðisson (D)

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!