Victoría Líf Hermannsdóttir, Heimir Sigurpáll Árnason, Jóhann Nóel Kristinsson, Brynhildur Rós Ævarsdóttir og Michael Adam Mörk Amador eru öll nemendur við Verkmenntaskólann á Akureyri og eru þar saman í frumkvöðlafræði áfanga. Fjögur þeirra eru á viðskipta- og hagfræðibraut og einn er að læra húsasmíði. Victoría og Heimir koma frá Hrísey, Jóhann frá Dalvík og Brynhildur og Michael eru frá Akureyri.
Í áfanganum sem þau eru í eiga þau að að hanna vöru eða þjónustu og datt þeim hug að gera spurningaborðspil sem þau ákváðu að skíra Ekki Googla.
„Hugmyndin var alltaf að gera einhverskonar spil. Fyrsta hugmyndin að gera Íslenska kauphallarspilið en þegar við fórum aðeins að hugsa út í hvernig við ætluðum að gera þetta þá var þetta orðið svo flókið að við sjálf skyldum ekki spilið. Upp kom þá hugmyndin að gera spurninga-borðspil. Við hugsuðum nafnið lengi á spilinu og loks kom Victoría með hugmyndina að láta spurninga-borðspilið heita Ekki Googla,“ segja nemendurnir.
Spilið inniheldur 600 spurningar, 10 mismunandi spurningaflokka og tvo teninga. Það hentar 2-4 leikmönnum og í spilinu er bannað að googla spurningarnar. Spurningunum er skipt niður í erfiðleikastig – 1.þrep, 2.þrep, og 3.þrep. Leikmenn byrja með 15 stig og þeir tapa stigi ef þeir svara vitlaust (-1 stig á 1. þrepi, -2 á 2. þrepi og -3 á 3. þrepi). Eins fá leikmenn stig svari þeir rétt, eftir hvað þrep þeir velja. Leikmenn vinna spilið þegar þeir er komnir með 50 stig eða þegar þeir eru einir eftir með stig.
Ekki Googla er farið í sölu og fer salan fram hjá nemendum, aðallega í gegnum Facebook og Instagram.
Facebook: Ekki Googla
Instagram: ekki_googla















