Majó opnar í Hofi á föstudaginn

Veitingastaðurinn Majó gerði samning við Menningarfélag Akureyrar í lok síðasta ár um að taka við rekstri veitingastaðar í Hofi og nú á föstudaginn, 17. apríl, er komið að opnun eftir töluverðar framkvæmdir. Rekstraraðilar Majó eru bræðurnir Magnús Jón og Alexander Magnússynir, ásamt Ídu Irene Oddsdóttur og Aðalsteini Óla Magnússyni. 

„Framkvæmdirnar sem við hjá Majó höfum staðið í síðan í janúar marka stórt og spennandi stökk fyrir lítinn fjölskyldurekinn veitingastað. Við erum að fara úr því að vera opin tvisvar í mánuði yfir í daglegan rekstur, sem er bæði krefjandi og gríðarlega spennandi skref fyrir okkur,“ segir Ída Irene Oddsdóttir,

„Þó framkvæmdirnar hafi tekið lengri tíma en við lögðum upp með hafa þær gengið vel, og við erum ótrúlega stolt af útkomunni. Barinn er hinn glæsilegasti og rýmið allt hefur tekið miklum breytingum. Þetta er staður sem við getum ekki beðið eftir að fylla af lífi, mat og gestum.“

„Undanfarið höfum við byrjað hægt og rólega að opna í hádeginu á efri hæðinni í Hofi, þar sem við höfum fengið afar góðar móttökur. Það hefur gefið okkur dýrmætt tækifæri til að þróa hugmyndirnar áfram og undirbúa næsta skref. Við erum að byrja með stærri matseðil, fleiri spennandi rétti og drykki, verðum með kaffi og bakkelsi, hádegis- og síðdegisseðil og kvöldseðil,“ segir Ída.

Formleg opnun er föstudaginn 17.apríl, hægt er að bóka borð og brottnámsbakka (take away) með því að senda línu á majo@majoiceland.is. Von bráðar kemur svo ný heimasíða í loftið þar sem hægt verður að panta borð og skoða matseðilinn

Hér að neðan má sjá myndir af framkvæmdum: 

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!