Í dag fara fram sveitarstjórnarkosningar um allt land. Hér á Norðurlandi eystra er veðurblíða á kjördag, hiti er 6 til 12 stig og víðast hvar má búast við sólskini. Í landshlutanum eru ellefu sveitarfélög en kosningar fara aðeins fram í tíu þeirra, þar sem T-listinn var sjálfkjörinn í Tjörneshreppi.
Kaffið.is mun fylgjast vel með kosningunum í dag. Allar ábendingar, myndir frá kjörstöðum og aðrar upplýsingar má senda á kaffid@kaffid.is.
Akureyrarbær
Kjörfundur hófst klukkan 9:00 í morgun og stendur yfir til klukkan 22:00 í kvöld. Kjörstaðir í Hrísey og Grímsey loka fyrr, en verða opnir til klukkan 17:30, nema allir kjósendur hafi skilað atkvæði fyrir þann tíma.
Helga Eymundsdóttir, formaður kjörstjórnar Akureyrar, sagði í viðtali við mbl.is í gær að frekar hefðbundinn fjöldi utankjörfundaratkvæða hafi borist að þessu sinni. Hún segir þetta hafi komið á óvart, en kjörstjórn hafi búist við „metþátttöku í utankjörfundaratkvæðagreiðslu“ vegna fjölda millilandafluga frá Akureyri fyrir helgina.
Átta framboð bjóða fram lista í Akureyrarbæ: Akureyrarlistinn (A), Framsóknarflokkurinn (B), Viðreisn (C), Sjálfstæðisflokkurinn (D), L-listinn, Bæjarlisti Akureyrar (L), Miðflokkurinn (M), Samfylkingin (S) og Vinstri hreyfingin, grænt framboð (V)
Eyjafjarðarsveit
Kjörstaður er í Félagsborg á Hrafnagili. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 í Eyjafjarðarsveit og stendur yfir til klukkan 22:00. Tveir listar bjóða fram, F-listinn og K-listinn.
Dalvíkurbyggð
Kjörstaður er í Dalvíkurskóla. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og stendur yfir til klukkan 22:00. Fjórir listar bjóða fram: A-listi Byggðalistans, B-listi Framsóknarflokks, D-listi Sjálfstæðisflokks og K-listi Dalvíkurbyggðar
Fjallabyggð
Kjörstaðir eru í Menntaskólanum á Tröllaskaga og í Ráðhúsinu á Siglufirði. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og stendur yfir til klukkan 22:00. Þrír listar bjóða fram: D-listi Sjálfstæðisflokks, H-listinn fyrir heildina í Fjallabyggð og S-listi Jafnaðarmannafélags Fjallabyggðar og óháðra.
Hörgársveit
Kjörstaður er í Þelamerkurskóla. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og stendur yfir til klukkan 22:00. Þrír listar bjóða fram: D-listi sjálfstæðismanna og óháðra, G-listi Grósku og H-listi Hörgársveitar
Svalbarðsstrandarhreppur
Kjörstaður er í Valsárskóla. Kjörfundur hófst klukkan 09:00 og stefnt er að því að ljúka kjörfundi kl. 17:00. Þrír listar bjóða fram: Samstaða (S), Strönd til framtíðar (H) og Ströndungur (Ö)
Þingeyjarsveit
Kjörstaður er í félagsheimilinu Breiðumýri. Kjörfundur hófst klukkan 10:00 og stendur yfir til klukkan 22:00. Þrír listar bjóða fram: Á-listi ábyrgðar, L-listi framfara og N-listinn.
Norðurþing
Íbúar Húsavíkur og Reykjahverfis kjósa í Borgarhólsskóla á Húsavík. Kjörfundur þar hófst klukkan 09:00 og stendur yfir til klukkan 22:00.
Íbúar Kelduhverfis kjósa í Skúlagarði. Íbúar Kópaskers og Öxarfjarðar kjósa í Skólahúsinu á Kópaskeri. Íbúar Raufarhafnar og nágrennis kjósa í Ráðhúsinu á Raufarhöfn. Kjörfundir á öllum þessum kjörstöðum hófust klukkan 10:00 og standa yfir til klukkan 18:00.
Sex listar bjóða fram í Norðurþingi: B-listi Framsóknarflokksins, D-listi Sjálfstæðisflokksins, M-listi Samfélagsins, Ó-listi Óskalistinn, S-listi Samfylkingarinnar og V-listi Velferðar
Grýtubakkahreppur
Kjörstaður er í Grenivíkurskóla. Kjörfundur hófst klukkan 09:00 og stendur yfir til klukkan 17:00. Engir framboðslistar bárust kjörstjórn svo kosningarnar eru óbundnar.
Langanesbyggð
Þrír kjörstaðir eru í sveitarfélaginu. Það eru skrifstofur sveitarfélagsins á Þórshöfn og Bakkafirði, sem og Svalbarðsskóli. Kjöstaður á Þórshöfn er opinn frá 10:00 til 18:00 en hinir tveir bara frá 10:00 til 15:00. Engir framboðslistar bárust kjörstjórn svo kosningarnar eru óbundnar.










