Rætur – sýning á afrakstri listsmiðju barna í Sigurhæðum

Í dag, föstudaginn 12. júní frá klukkan 16-17, verður opnun á sýningu barna í Sigurhæðum á afrakstri listsmiðjunnar Róta. Afraksturinn verður einnig til sýnis yfir helgina frá klukkan 13-15.

Í smiðjunni hafa þátttakendur sameinað ræturnar í stórt sameiginlegt verk. Listaverkið hefur vaxið úr söfnuðum áferðum Sigurhæða og táknar bæði sögu staðarins og tengslin milli barnanna. Smiðjan hvetur til sköpunar, samvinnu og tilfinninga um það að tilheyra, en býður jafnframt upp á kynningu á menningararfi staðarins í gegnum vinnu með höndunum.

Börnin sem tóku þátt í listsmiðjunni eru á aldrinum sjö til níu ára og heita Blær, Emma Zinger, Líf Zinger, Piraye, Ronja Alís, Rósa Sigrún, Þór og Þórey Rós.

Leiðbeinandi er Tereza Kocian myndlistarkona og aðstoð er í höndum Eydísar Elsu Eiríksdóttur, nemanda á listnámsbraut VMA.

Barnamenningarsjóður Íslands fjármagnar verkefnið.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!