RÚV greindi frá því að fyrr í dag urðu þrír aðilar fyrir smávægilegum meiðslum þegar tveir bílar skullu saman á Þjóðvegi 1, nærri Vindbelgjarfjalli í Mývatnssveit. Að sögn lögreglunnar á Norðurlandi eystra fór annar bíllinn út af veginum í árekstrinum og endaði á hliðinni.
Tveir slökkviliðsbílar voru kallaðir á vettvang en samkvæmt fulltrúa lögreglu var það vegna hversu margir vettvangsliðar voru á svæðinu. Báðar bifreiðarnar voru óökuhæfar eftir óhappið og þurfti lögreglan að stöðva umferð í stutta stund á meðan þær voru dregnar burt.
Auglýsing - Vilt þú auglýsa hér?










