Mikil úrkoma hefur tafið viðhaldsvinnu á brúnni yfir Jökulsá á Fjöllum þar sem meðal annars er unnið að málun hennar. Ljóst er að ekki næst að ljúka málningarvinnu fyrr en í lok júní, að því gefnu að ekki verði áframhaldandi úrkoma næstu daga og vikur.
Náið er fylgst með veðurspám og staðan tekin daglega, enda allt kapp lagt á að ljúka vinnunni sem fyrst.
Viðhaldsvinna við brúna hófst þann 26. maí síðastliðinn og var upphaflega áætlað að hún stæði til 16. júní. Umferðartakmarkanir hafa verið á brúnni vegna vinnunnar en þær hafa fallið niður þá daga sem ekki hefur verið hægt að vinna vegna rigningar og bleytu.
Þegar er búið að sandblása burðarkapla brúarinnar og grunna um helming þeirra. Unnið er að því að grunna aðra umferð og byrjað er að lakka lokaumferð að hluta. Ekki er hægt að nota fljótlegri aðferðir, svo sem sprautumálun, heldur þarf að vinna með penslum til að tryggja að yfirborð burðarkaplanna sé fullkomlega lokað.
Brúin var byggð árið 1947 og burðarþolið hefur minnkað í áranna rás. Ryðmyndun í köplum er orðin nokkur og því er afar mikilvægt að stöðva þá þróun með því að klára þessa vinnu sem fyrst.
Vel er fylgst með veðurspánni og staðan metin reglulega. Ef það helst þurrt verður unnið alla virka daga frá klukkan 8:00 á morgnana til klukkan 19:00 á kvöldin.
Opið verður fyrir umferð á eftirfarandi tímum dags:
09:45 – 10:15
12:00 – 13:00
14:45 – 15:15
16:45 – 17:15
Lokanir ættu ekki að hafa mikil áhrif á neyðarflutninga þar sem unnt verður að opna
fyrir umferð um brúna með skömmum fyrirvara ef aðstæður krefjast.
Vonast er til að verkið verði klárað í lok júní. Upplýsingaskilti með leiðbeiningum og merkingum eru við brúna og vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna þolinmæði, fylgja merkingum og virða fyrirmæli á svæðinu.
Raunupplýsingar um umferðartakmarkanir er ávallt að finna á www.umferdin.is.











