Ungir listamenn með sína fyrstu sýningu

Þrír ungir listamenn munu halda sína fyrstu listasýningu hjá Gilfélaginu í Deiglunni dagana 12-14. júní og 19-21. júní. Sýningin verður opin frá klukkan 20-22 á föstudögum og milli 14-17 á laugardögum og sunnudögum. Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir, Hafey Hvítfeld og Mahaut Ingiríður Matharel halda samsýninguna og hér fyrir neðan er hægt að lesa stuttar kynningar frá þeim.

„Þessi sýning er algjört bland í poka. Þetta er fyrsta sjálfstæða listasýningin okkar og ákváðum við því að leyfa okkur að sýna hverjar við erum án þess að festa okkur um of í stærra þema. Þó reyndum við að hafa svolítið samræmi og notuðumst við við þrjá meginliti: bláan, bleikan og grænan, í verkunum okkar.
Sum verk verða til sölu á sýningunni og verða þau vel merkt. Það er spennandi og mikill heiður fyrir okkur að fá að sýna hjá Gilfélaginu og vonumst við eftir sem flestum gestum til að styðja okkur áfram í þessum fyrstu skrefum okkar á listaferlinum,“ segja listamennirnir um sýninguna.

Aðalheiður Jóna Kolbeins Liljudóttir

Ég útskrifaðist af listnámsbraut VMA vorið 2025 og síðasta árið hef ég unnið á leikskólanum Klöppum og lært mikið. Jafnframt hef ég stundað nám við Tónlistarskóla Akureyrar þar sem ég stefni á að klára framhaldspróf á hljóðfærin mín, fiðlu og básúnu. Verkin sem ég sýni á þessari sýningu eru af ýmsum toga þar sem ég er að þróa og átta mig á eigin stíl og húmor í verkunum. Ekki taka þeim of alvarlega. Ef áhugi er fyrir hendi þá verða verkin mín til sölu.

Hafey Hvítfeld


Ég útskrifaðist með stúdentspróf af listnámsbrautinni í VMA og er núna í Háskóla Íslands að læra að verða náttúrufræðikennari. Ég bý því fyrir sunnan með kærustunni minni og er sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Einnig starfa ég á Hrafnistu hjúkrunarheimili. Ég hef haldið sýningar í samstarfi við skóla og Amtsbókasafnið og er ég því verulega spennt að fá að sýna með Gilfélaginu. Öll mín verk verða til sölu.

Mahaut Ingiríður Matharel

Ég er akureyrsk listakona sem sérhæfi mig í tónlist en útskrifaðist með stúdentspróf af listnámsbrautinni í Vermenntaskólanum á Akureyri vorið 2025 og hef haldið áfram að skapa síðan. Ég stefni á að halda áfram í tónlist og fara í tónlistarháskóla á hörpu haustið 2027. Einnig er ég Sumarlistamaður Akureyrarbæjar og í fjölmörgum hljómsveitum. Öll verkin mín eru akrýl á striga. Ég tek innblástur úr náttúru, íslenskri og franskri og lífinu í henni og myndunum úr spilinu dixit.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!