Á-listinn sigrar í Þingeyjarsveit – Hreinn meirihluti fulltrúa

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í Þingeyjarsveit liggja nú fyrir og lokatölur komnar í hús. Á síðasta kjörtímabili gekk ýmislegt á í sveitarstjórnarmálum þar í sveit og eru því allir listar í þessum kosningum ný framboð.

Á-listi Ábyrgðar er afgerandi sigurvegari kosninganna. Hann hlaut 49,1% atkvæða og 4 kjörna fulltrúa, sem er hreinn meirihluti í sveitarstjórn.

L-listi framfara hlaut 29,2% atkvæða og 2 kjörna fulltrúa.

N-listinn hlaut 21,7% atkvæða og 1 kjörinn fulltrúa.

Á kjörskrá voru 1.114 manns og kjörsókn var 73,4%.

Kjörnir fulltrúar

Knútur Emil Jónasson (Á)

Hallgrímur Páll Leifsson (L)

Nanna Marteinsdóttir (Á)

Eyþór Kári Ingólfsson (N)

Anna Bragadóttir (Á)

Freydís Anna Ingvarsdóttir (L)

Dóra Rún Kristjánsdóttir (Á)

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!