Árlega listahátíðin Frjó sem haldin er í Fjallabyggð á vegum Alþýðuhússins á Siglufirði fer fram dagana 10.–12. júlí.
„Frjó er þriggja daga listahátíð þar sem fram koma listamenn og skapandi einstaklingar sem framkalla list sína með ólíkum miðlum og sameinast í einum suðupotti um miðjan júlí ár hvert. Listamenn og gestir sem taka þátt í Frjó upplifa þrjá til fjóra listviðburði á dag, dvelja saman og miðla list sinni, skoðunum og kunnáttu. Þau verða fyrir áhrifum hvort af öðru, mynda tengsl sín á milli og út fyrir hátíðina. Þau kynnast bæjarfélaginu, náttúrunni sem er allt um lykjandi og áhugasömum bæjarbúum og öðrum gestum,“ segir á vef Alþýðuhússins.
Helgarpassi á hátíðina kostar 15.000 kr., dagspassi 7.000 kr. og miði á stakan viðburð 5.000 kr. Miðar á hátíðina eru seldir í anddyri Alþýðuhússins.
Hér má sjá upplýsingar um dagskrá og þátttakendur.










