Ljósmynd: hri.is

Góður árangur HFA

Íslandsmót í tímatöku og götuhjólreiðum fóru fram á Norðurlandi á vegum Hjólreiðafélags Akureyrar (HFA) um helgina.

Íslandsmótið í tímatöku fór fram í fyrradag nálægt Hrafnagili. Þar fagnaði Hafdís Sigurðardóttir, keppandi HFA, sigri í A-flokki kvenna og tryggði sér þar með fimmta Íslandsmeistaratitil sinn í röð í greininni. Fleiri keppendur HFA stóðuá verðlaunapalli í tímatökunni; Rögnvaldur Már Helgason sigraði í B-flokki karla, Júlía Björg Jóhannsdóttir vann U13 flokk stúlkna og Aron Breki Haraldsson bar sigur úr býtum í U11 flokki drengja. Þá endaði Regína Diljá Rögnvaldsdóttir í þriðja sæti í U17 flokki stúlkna.

Götuhjólreiðarnar fóru síðan fram í gær við nokkuð köld og vindasöm skilyrði í Svarfaðardal. Í A-flokki kvenna lenti Hafdís Sigurðardóttir í öðru sæti, en mjótt var á mununum þar sem hún var aðeins 23 sekúndubrotum á eftir sigurvegaranum, Bríet Kristý Gunnarsdóttir úr HFR. Í B-flokki kvenna röðuðu keppendur HFA sér í efstu tvö sætin þar sem Harpa Mjöll Hermannsdóttir kom fyrst í mark og Þórdís Rósa Sigurðardóttir tryggði sér annað sætið.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!