Bjarmahlíð á Akureyri hlýtur 16 milljóna króna styrk 

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur veitt öllum fjórum þjónustumiðstöðvum fyrir þolendur ofbeldis á Íslandi styrk til að efla þjónustu þeirra og styðja við starfsemina.

  • Bjarkarhlíð í Reykjavík hlýtur 15 milljóna króna styrk 
  • Bjarmahlíð á Akureyri hlýtur 16 milljóna króna styrk 
  • Sigurhæðir á Selfossi hljóta 17 milljóna króna styrk 
  • Suðurhlíð á Suðurnesjum hlýtur 20 milljóna króna styrk 

Miðstöðvarnar starfa eftir hugmyndafræði svonefndra Family Justice Center þar sem markmiðið er að þolendur ofbeldis fái þjónustu og stuðning á einum stað, þeim að kostnaðarlausu og á þeirra eigin forsendum.

„Brýnt er að tryggja að þolendur ofbeldis fái viðeigandi stuðning og ráðgjöf. Þar gegna þjónustumiðstöðvarnar fyrir þolendur ofbeldis lykilhlutverki en þær hafa reynst mörgum ómetanlegur stuðningur. Mikil þörf er fyrir þjónustu þeirra og því ánægjulegt að stjórnvöld styðji myndarlega við starfsemina,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Bjarmahlíð er eina þolendamiðstöðin utan suðvesturhorns og sú eina sem þjónustar einstaklinga niður í 16 ára.
Einstaklingum gefst kostur á viðtölum hjá ráðgjöfum Bjarmahlíðar, félagsráðgjöfum, lögfræðingum, lögreglu og barnaverndarfulltrúum þeim að kostnaðarlausu og á þeirra forsendum. Viðtölin geta öll farið fram í húsnæði Bjarmahlíðar, Aðalstræti 14.

Vikulegt fréttabréf

Fáðu helstu fréttir vikunnar frá Kaffið.is í tölvupósthólfið.

Vinsamlegast bíddu meðan við skráum þig!

Takk fyrir að skrá þig!