Töluvert fleiri börn hafa fæðst á Fæðingardeild SAk það sem af er ári en á sama tíma í fyrra, eða um þrjátíu og fimm prósent fleiri. Þetta kemur fram á RÚV.
Ingibjörg Jónsdóttir, yfirljósmóðir og deildarstjóri fæðingardeildarinnar, segir í samtali við RÚV að hún fagni þróuninni og telji líklegt að um sé að ræða eðlilega sveiflu í fæðingatölum.
Ingibjörg rifjar upp tvo annasama daga á deildinni. Þann 31. mars fæddust sjö börn, sex stúlkur og einn drengur og þann 9. júní komu sex drengir í heiminn. „Fyrsta fæðir hérna 3:06 inni á þessari stofu, bara fullbúin fæðingarstofa. Önnur fæddi á fæðingarstofu sem er hérna hinu megin klukkan 3:16 og þriðja þurfti að fæða hérna á bara svona venjulegri sængurlegustofu klukkan 3:26.“
Samkvæmt tölum frá Hagstofu Íslands hefur frjósemi á Íslandi verið í sögulegu lágmarki undanfarin tvö ár. Fjölgunin á Akureyri vekur því sérstaka athygli.









