Á Kvenréttindadaginn 19. júní verður tónlistar- og sögukvöldið Í fótspor þeirra flutt í Hofi á Akureyri. Viðburðurinn er hluti af dagskrá Hinsegin daga á Norðurlandi og eru engir hefðbundnir tónleikar heldur tónlistarleg frásögn um hugrekki, samkennd, sýnileika og von.
Helga Margrét Clarke, söngkona og Akureyringur, mun segja sögu þessarar réttindabaráttu og leiðir verkefnið ásamt tónlistarfólkinu; Aðalheiði Þorsteinsdóttur á píanó, Róbertu Andersen á gítar og Ingibjörgu Elsu Turchi á rafbassa.
Sýningin er óvenjuleg blanda af tónlist og frásögn þar sem rakin eru spor listafólks sem notaði rödd sína til að tjá vonir, mótmæli, frelsisþrá og mannlega reynslu. Á dagskránni eru lög og sögur tengdar tónlistarfólki á borð við Billie Holiday, Nina Simone, Joni Mitchell, Joan Baez, Kate Bush, Tracy Chapman, k.d. lang, Dusty Springfield og fleirum. Efnisskráin spannar jazz, blús, þjóðlagatónlist og popp og leiðir áhorfendur í gegnum ólík tímabil og ólíka baráttu fyrir sýnileika, frelsi og réttlæti.
Á milli laga eru sagðar stuttar frásagnir sem tengja saman sögur tónskálda og flytjenda og varpa ljósi á hvernig tónlist getur orðið hluti af stærri samfélagslegri baráttu. Þar mætast sögur svartra listamanna, kvenna og hinsegin fólks sem hefur haft mótandi áhrif á samfélagið með list sinni. Tónleikarnir eru jafnframt persónuleg ferð þar sem frumsamin lög tengja sögurnar við samtímann og velta upp þeirri spurningu hvað þessar raddir geti enn kennt okkur í dag.
Viðburðurinn er styrktur af Verðandi listsjóði og Hinsegin hátíð á Norðurlandi eystra.









